Streetball mót KFÍ
KFÍ mun halda 3 á 3 Streetball mót sunnudaginn 19. júní kl. 14.00.
Reglur*
- Mótið er fyrir 15 ára og eldri.
- Þrír í liði, enginn varamaður.
- 1 stig og 2 stig.
- Ekki “Make-it, Take-it”. Varnarlið fær boltann eftir skoraða körfu.
- Sóknin dæmir. Almenn skynsemi, engar aumingjavillur.
- Ekki mega vera fleiri en tveir meistaraflokksmenn saman í liði.
- Spilað upp i 11, vinna með tveimur, mest upp í 13 og/eða 12 mínútur.
- Leikið er á eina körfu. Alltaf að "checka" eftir skoraða körfu. Ef það er varnarfrákast þarf að spila boltanum út fyrir þriggjastigalínu og þá er boltinn í leik.
Þátttökugjald á mótið er 1.000 kr. og mun allur ágóði renna til viðhalds á útikörfuboltavellinum. Verðlaun fyrir sigurliðið.
* Mótsstjóri áskilur sér rétt til að breyta reglum ef hann telur þörf vera á breytingum.







