Körfuboltabúðir KFÍ 2010

Búðirnar hefjast sunnudaginn 6. júní.
Dagskrá búðanna er klár, sjá hér.
Fullt er í búðir og ekki unnt að taka við frekari skráningum nema í minniboltahópa.

Samhliða búðunum verður boðið upp á þjálfaranámsskeið.

Skráningar í búðirnar og á þjálfaranámsskeiðið sendist á netfangið hsv@hsv.is, einnig hægt að skrá í síma 450-8450 eða 861-4668.

Þjálfararnir 4 sem koma munu halda fyrirlestra sem munu nýtast öllum áhugasömum og metnaðarfullum þjálfurum.

Þjálfararnir munu taka eftirfarandi atriði fyrir:

Nebojsa Vidic
2-3 svæðisvörn
Pick og roll sókn

Dragan Vasilov
Æfingar til að hjálpa liðinu, hluti 1
Æfingar til að hjálpa liðinu, hluti 2

Tony Radic
Hraðaupphlaup,(fyrsta sókn)
Vörn allan völlin, aggressív

Gustavo Rios Gonzalez
Miðherjaþjálfun
Vörn á móti pick og roll

Tímasetningar þjálfaranámskeiða

Það verður sem sagt ekki eingöngu veisla fyrir iðkendur þetta árið, mikið í boði fyrir þjálfara.

Verð fyrir þjálfaranámskeiðið verður kr. 15.000 fyrir alla 4 dagana eða kr. 10.000 fyrir 2 daga.


Praktísk atriði

Gistingin er svefnpokagisting, boðið er upp á rúm en taka þarf með svefnpoka eða sængur og kodda.

Foreldrar/fararstjórar munu hafa aðgang að þvottavélum þannig að óþarfi að hafa föt til skiptana fyrir alla dagana.

Frítt verður í sund fyrir þátttakendur þannig að upplagt að taka sundfötin með og teygja úr sér í pottinum á milli æfinga.

Umgengisreglur á vistinni
« September »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
Næstu atburðir