Streetball mót KFÍ
KFÍ mun halda 3 á 3 Streetball mót sunnudaginn 11. júlí kl. 14.30. Mótið er fyrir 15 ára og eldri og mega ekki vera fleiri en tveir meistaraflokksmenn saman í liði. Fjórir geta verið saman í liði en þá er alltaf varamaður sem hvílir fyrir hvern leik.
Þátttökugjald á mótið er 1.000 kr. og mun allur ágóði renna til viðhalds á útikörfuboltavellinum. Verðlaun fyrir sigurliðið.
Skráning
- Hvar?
Útivöllurinn á Torfnesi - Hvenær?
11. júlí - Klukkan?
14:30 til 16:30






